{"id":102,"date":"2013-04-14T16:11:52","date_gmt":"2013-04-14T16:11:52","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=102"},"modified":"2013-04-14T16:11:52","modified_gmt":"2013-04-14T16:11:52","slug":"lovisa-einarsdottir-1943-2013","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=102","title":{"rendered":"Lov\u00edsa Einarsd\u00f3ttir 1943-2013"},"content":{"rendered":"<div id=\"post-4785\">\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/04\/lovisaeinarsdottir.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-104\" alt=\"lovisaeinarsdottir\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/04\/lovisaeinarsdottir.png\" width=\"211\" height=\"242\" \/><\/a>Minningaror\u00f0<br \/>\n<strong>Lov\u00edsa Einarsd\u00f3ttir<br \/>\n<\/strong>fv. \u00ed\u00fer\u00f3ttakennari<br \/>\n1943-2013<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 V\u00eddal\u00ednskirkju<br \/>\nf\u00f6studaginn 12. apr\u00edl 2013 kl. 15<br \/>\nJar\u00f0sett \u00ed G\u00f6r\u00f0um<\/p>\n<p>\u00de\u00fa getur lesi\u00f0 r\u00e6\u00f0una h\u00e9r fyrir ne\u00f0an<br \/>\nog einnig hlusta\u00f0.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n\n<p><strong>\u00cd\u00a0<\/strong>Gar\u00f0ab\u00e6 eru \u00fe\u00fasundir kvenna \u00e1 \u00f6llum aldri saman komnar. Eiginkona m\u00edn, d\u00f3ttir og tengdam\u00f3\u00f0ir eru m\u00e6ttar og d\u00f3tturd\u00f3ttir \u00ed kerru. Margar kynsl\u00f3\u00f0ir taka \u00fe\u00e1tt. Lov\u00edsa er \u00e1 pallinum \u00fear sem h\u00fan \u00e1varpar h\u00f3pinn og l\u00e6tur konurnar gera \u00e6fingar. Svo leggja \u00fe\u00e6r \u00ed hann. H\u00f3purinn li\u00f0ast af sta\u00f0 \u00ed rau\u00f0um treyjum og hreyfist eins og bylgja \u00e1 s\u00e6, eins og aldan for\u00f0um daga vi\u00f0 \u00cdvarssel \u00ed Vesturb\u00e6num \u00fear sem h\u00fan \u00f3lst upp.<\/p>\n<p>Kvennhlaupi\u00f0 er hafi\u00f0.<\/p>\n<p>\u00c6vint\u00fdri\u00f0 or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 veruleika.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er hlaup eins og s\u00e9ra Hallgr\u00edmur or\u00f0ar \u00fea\u00f0:<\/p>\n<blockquote><p>Svo hleypur \u00e6skan unga<br \/>\n\u00f3vissa dau\u00f0ans lei\u00f0<br \/>\nsem aldur og ellin \u00feunga,<br \/>\nallt rennur sama skei\u00f0.<br \/>\nInnsigli engir fengu<br \/>\nupp \u00e1 l\u00edfsstunda bi\u00f0,<br \/>\nen \u00feann kost undir gengu<br \/>\nallir a\u00f0 skilja vi\u00f0.<\/p><\/blockquote>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er hlaup og \u00fea\u00f0 endar \u00ed einu og sama markinu hva\u00f0 okkur \u00f6ll va\u00f0rar, markhli\u00f0inu sem enginn vill \u00ed raun fara \u00ed gegnum. En vi\u00f0 ver\u00f0um. Vi\u00f0 komumst ekki hj\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 fara \u00feessa lei\u00f0.<\/p>\n<p>Lov\u00edsa hefur loki\u00f0 s\u00ednu l\u00edfshlaupi.<\/p>\n<p>\u00cd H\u00fasfreyjunni, t\u00edmariti Kvenf\u00e9lagasambandi \u00cdslands birtist vi\u00f0tal vi\u00f0 hana fyrir 5 \u00e1rum (3. tbl. 59. \u00e1rg. 2008). \u00dear segir h\u00fan fr\u00e1 uppvexti s\u00ednum hj\u00e1 m\u00f6mmu, afa og \u00f6mmu og fleira fr\u00e6ndf\u00f3lki \u00ed \u00cdvarsseli vestast \u00ed Vesturb\u00e6num. \u00dear var fjaran og sj\u00f3rinn. \u00dear breyttist umhverfi\u00f0 eftir sj\u00e1varf\u00f6llum. H\u00e6gt var a\u00f0 fara \u00fat \u00ed \u00d6rfirisey \u00e1 fj\u00f6runni og horfa \u00e1 sama sta\u00f0 sem eyland eftir a\u00f0falli\u00f0.<\/p>\n<p>Lov\u00edsa f\u00e6ddist \u00ed Reykjav\u00edk 18. \u00e1g\u00fast 1943. H\u00fan l\u00e9st \u00e1 l\u00edknardeild Landsp\u00edtalans \u00ed K\u00f3pavogi 31.mars 2013<\/p>\n<p>Foreldrar hennar voru Einar J\u00f3hannsson (f. 27.3. 1921, d. 10.7. 1984) og \u00c1slaug Einarsd\u00f3ttir, (f. 3.2. 1920, d. 16.3. 1984). Samfe\u00f0ra systkini Lov\u00edsu eru:<\/p>\n<p>El\u00edsabeth, f. 14.11. 1949,<br \/>\nEinar, f. 20.8. 1951,<br \/>\nMargr\u00e9t, f. 26.4. 1953,<br \/>\nKonr\u00e1\u00f0, f. 7. 2. 1955 og<br \/>\nKristinn, f. 15.2. 1956.<\/p>\n<p>Lov\u00edsa giftist \u00e1ri\u00f0 1964 \u00d3skari Hafsteini Karlssyni framkv\u00e6mdastj\u00f3ra, f. 15.2. 1935. \u00deau skildu \u00e1ri\u00f0 1987.<\/p>\n<p>B\u00f6rn \u00feeirra<br \/>\n\u00c1slaug, f. 22.12. 1965, tannl\u00e6knir, maki Ing\u00f3lfur Einarsson l\u00e6knir, f. 28.10. 1968. Synir \u00feeirra: \u00d3skar, f. 3. 9. 1997 og Dav\u00ed\u00f0 Einar, f. 2.5. 1999,<\/p>\n<p>D\u00f3ra Sif, f. 12.10.1969 sj\u00fakra\u00fej\u00e1lfari, maki Helge Lavergren, f. 3.12. 1970. Synir \u00feeirra: Karl \u00cdvar, f. 25. 4. 2004 og Magn\u00fas \u00d6rn, f. 10.1. 2007,<\/p>\n<p>\u00cdvar Helgi, f. 17.9. 1971, d. 17.8. 1991.<\/p>\n<p>Eftirlifandi eiginma\u00f0ur Lov\u00edsu er dr. Ingimar J\u00f3nsson, f. 19. 12 1937.<\/p>\n<p>Lov\u00edsa var \u00ed\u00fer\u00f3ttakennari og sj\u00fakrali\u00f0i a\u00f0 mennt. H\u00fan kenndi kvennaleikfimi \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6 \u00ed m\u00f6rg \u00e1r, m.a. \u00e1 vegum UMF. Stj\u00f6rnunnar. H\u00fan stj\u00f3rna\u00f0i leikfimih\u00f3pum kvenna um langt skei\u00f0 og f\u00f3r me\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00e1 m\u00f6rg al\u00fej\u00f3\u00f0am\u00f3t. Um \u00e1rabil var h\u00fan lei\u00f0beinandi \u00ed heilsur\u00e6kt aldra\u00f0a \u00e1 Hrafnistu \u00ed Hafnarfir\u00f0i. \u00c1ri\u00f0 1989 stofna\u00f0i h\u00fan til heilsur\u00e6ktar kvenna sem gengist h\u00f6f\u00f0u undir a\u00f0ger\u00f0 vegna brj\u00f3stakrabbameins. Var h\u00fan brautry\u00f0jandi \u00e1 \u00fev\u00ed svi\u00f0i h\u00e9rlendis. S\u00ed\u00f0ustu \u00e1rin starfa\u00f0i h\u00fan sem lei\u00f0beinandi \u00ed heilsur\u00e6kt og samskiptafulltr\u00fai \u00e1 Hrafnistu \u00ed Hafnarfir\u00f0i og \u00e1 hj\u00fakrunarheimili Hrafnistu vi\u00f0 Bo\u00f0a\u00feing.<\/p>\n<p>Lov\u00edsa var forma\u00f0ur Fimleikasambands \u00cdslands \u00e1rin 1981-1985. H\u00fan \u00e1tti s\u00e6ti \u00ed stj\u00f3rn \u00cd\u00fer\u00f3ttasambands \u00cdslands 1986-1996 og starfa\u00f0i \u00ed m\u00f6rgum nefndum \u00e1 vegum \u00feess. H\u00fan var einn helsti frumkv\u00f6\u00f0ull Kvennahlaups \u00cdS\u00cd \u00e1ri\u00f0 1990 og sat \u00ed undirb\u00faningsnefnd \u00feess \u00ed m\u00f6rg \u00e1r. H\u00fan \u00e1tti s\u00e6ti \u00ed b\u00e6jarstj\u00f3rn Gar\u00f0ab\u00e6jar \u00e1rin 1998-2002 (varab\u00e6jarfulltr\u00fai 2002-2006) og starfa\u00f0i \u00ed m\u00f6rgum nefndum \u00e1 vegum b\u00e6jarins, m.a. \u00ed menningarm\u00e1lanefnd og stj\u00f3rn Hj\u00fakrunarheimilisins Holtsb\u00fa\u00f0 \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6. H\u00fan var virk \u00ed starfi Kvenf\u00e9lags Gar\u00f0ab\u00e6jar og Norr\u00e6na f\u00e9lagsins \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6.<\/p>\n<p>Lov\u00edsa rita\u00f0i margar greinar um \u00ed\u00fer\u00f3ttir og m\u00e1lefni aldra\u00f0ra \u00ed dagbl\u00f6\u00f0 og t\u00edmarit.<\/p>\n<p>H\u00fan hlaut margar vi\u00f0urkenningar fyrir st\u00f6rf a\u00f0 f\u00e9lags-og \u00ed\u00fer\u00f3ttam\u00e1lum. H\u00fan var s\u00e6md f\u00e1lkaor\u00f0unni og svo veitti Al\u00fej\u00f3\u00f0a\u00f3lymp\u00edunefndin henni s\u00e9rstaka vi\u00f0urkenningu. H\u00fan hlaut gullmerki \u00cdS\u00cd og Samhj\u00e1lpar kvenna og var kj\u00f6rin hei\u00f0ursf\u00e9lagi \u00cdS\u00cd.<\/p>\n<p>Lov\u00edsa var kona me\u00f0 mikla \u00fatgeislun. H\u00fan haf\u00f0i bjartan svip og fallegt bros, var gla\u00f0leg \u00ed heg\u00f0un og h\u00e1ttum og haf\u00f0i yndi af f\u00e9lagsl\u00edfi. \u00c6ttingjar og vinir hennar rifja upp gla\u00f0v\u00e6r\u00f0 hennar, \u00e1hugan sem h\u00fan haf\u00f0i \u00e1 f\u00f3lki. H\u00fan var hrein og bein \u00ed samskiptum s\u00ednum vi\u00f0 f\u00f3lk og \u00ed henni var enginn hringlandi, heyr\u00f0i \u00e9g sagt um hana. H\u00fan haf\u00f0i mikinn metna\u00f0 \u00ed starfi og \u00feegar h\u00fan \u00fej\u00e1lfa\u00f0i h\u00f3pa \u00fe\u00e1 lag\u00f0i h\u00fan sig alla \u00ed \u00fea\u00f0. Eitt sinn var h\u00fan me\u00f0 fimleikah\u00f3p \u00ed keppni \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 og \u00feegar kom a\u00f0 h\u00f3pnum hennar a\u00f0 s\u00fdna var fari\u00f0 a\u00f0 rigna sem hellt v\u00e6ri \u00far f\u00f6tu, pallurinn allur \u00ed pollum og a\u00f0st\u00e6\u00f0ur or\u00f0nar \u00f3kr\u00e6silegar. \u00de\u00e1 sag\u00f0i Lov\u00edsa vi\u00f0 stelpurnar: Allt fyrir \u00cdsland! Og \u00fe\u00e6r t\u00f3ku \u00e1skorun lei\u00f0togans og veltu s\u00e9r upp \u00far regnvotum pallinum og kl\u00e1ru\u00f0u s\u00ednar \u00e6fingar me\u00f0 s\u00f3ma. H\u00fan haf\u00f0i lei\u00f0togah\u00e6fileika og gat bl\u00e1si\u00f0 f\u00f3lki hugrekki \u00ed brj\u00f3st.<\/p>\n<p>D\u00e6tur hennar voru \u00ed fimleikum og h\u00fan fylgdi \u00feeim vel eftir \u00ed \u00feeim efnum og hvatti \u00fe\u00e6r til d\u00e1\u00f0a.<\/p>\n<p>\u00de\u00e6r minnast m\u00f6mmu fyrir l\u00e9ttleika hennar og metna\u00f0, fagmennsku og vandvirkni \u00ed st\u00f6rfum. H\u00fan gladdi marga og var gestrisin. \u00de\u00e6r sakna m\u00f6mmu og barnab\u00f6rnin einnig, sakna \u00feeirra stunda sem hef\u00f0u geta\u00f0 or\u00f0i\u00f0 en ur\u00f0u ekki og ver\u00f0a ekki \u00far \u00feessu.<\/p>\n<p>\u00cd\u00fer\u00f3ttir, einkum fimleikar, voru hennar helsta \u00e1hugam\u00e1l. H\u00fan var minna fyrir kappleiki. H\u00fan byrja\u00f0i seint \u00ed golfi en s\u00fa \u00ed\u00fer\u00f3tt n\u00e1\u00f0i t\u00f6kum \u00e1 henni a\u00f0 lokum og h\u00fan naut \u00feess a\u00f0 leika golf hin s\u00ed\u00f0ari \u00e1rin.<\/p>\n<p>Lov\u00edsa kom v\u00ed\u00f0a vi\u00f0 og h\u00fan \u00e1tti m\u00f6rg \u00e1hugam\u00e1l, var fj\u00f6lh\u00e6f og \u00edhugul. H\u00fan orti t.a.m. lj\u00f3\u00f0 og n\u00fa f\u00e1um vi\u00f0 a\u00f0 heyra tv\u00f6 \u00feeirra. Saga J\u00f3nsd\u00f3ttir leikkona les:<\/p>\n<blockquote><p><strong>Vetrargj\u00f6f<\/strong><\/p>\n<p>Sp\u00faandi fannfergi\u00f0<br \/>\nsp\u00f3kar sig valdsmannslega<br \/>\nhv\u00edtf\u00e6tt.<br \/>\nVarpa\u00f0 \u00e1 veg \u00fat<br \/>\nvorlitu korni.<br \/>\nFlykkist sk\u00e6\u00f0adr\u00edfan<br \/>\n\u00ed s\u00f3lgula sa\u00f0ninguna.<\/p>\n<p>Hei\u00f0gul s\u00e1\u00f0brei\u00f0an<br \/>\nheimti herskara<br \/>\nv\u00e6ngja\u00f0ra l\u00edtilmagna.<br \/>\nTifu\u00f0u \u00f3tt og t\u00edtt<br \/>\n\u00ed tunglgulu dalverpi.<br \/>\nStygg\u00f0.<br \/>\nHurfu me\u00f0 h\u00f6rgulum hra\u00f0a lj\u00f3ssins.<br \/>\nGr\u00e6n-gular l\u00e6v\u00edsar glyrnur<br \/>\ndr\u00e1pu tittlinga.<\/p>\n<p><strong>Spor \u00e1 vatni<br \/>\n<\/strong><br \/>\n\u00d3snortin snj\u00f3brei\u00f0an<br \/>\nhylur botnfrosi\u00f0 vatni\u00f0<br \/>\nsem \u00e9g geng \u00e1.<\/p>\n<p>Marri\u00f0 vi\u00f0 hvert spor<br \/>\nandm\u00e6lir<br \/>\nheillandi kyrr\u00f0inni.<\/p>\n<p>L\u00edt til baka<br \/>\nvisnir br\u00faskar \u00e1 stangli<br \/>\nmarka skil \u00e1 l\u00e1\u00f0i og legi.<\/p>\n<p>\u00cd \u00fe\u00ed\u00f0unni munu spor m\u00edn<br \/>\nbr\u00e1\u00f0na, \u2013 hverfa.<br \/>\nS\u00f6kkva til botns<br \/>\n\u00ed vaknandi l\u00edfr\u00edki\u00f0.<\/p>\n<p>R\u00edki\u00f0 sem svaf undir<br \/>\ndrifhv\u00edtri s\u00e6ng<br \/>\nog mynstru\u00f0 var<br \/>\nmarrandi f\u00f3tsporm m\u00ednu.<\/p><\/blockquote>\n<p>Eins og lj\u00f3\u00f0in bera me\u00f0 s\u00e9r bj\u00f3 \u00ed Lov\u00edsu \u00ed senn alvara og gle\u00f0i, d\u00fdpt og l\u00edfsleikni. Lov\u00edsa var hr\u00f3kur alls fagna\u00f0ar \u00e1 fundum \u00feeirra f\u00e9laga sem h\u00fan starfa\u00f0i \u00ed og ef \u00e1rsh\u00e1t\u00ed\u00f0 var haldin var h\u00fan gjarnan \u00ed hlutverki skemmitkraftar og ger\u00f0i a\u00f0 gamni s\u00ednu me\u00f0 g\u00f3\u00f0um vinkonum. Lov\u00edsa var mj\u00f6g s\u00f6ngelsk, og t\u00f3k oft lagi\u00f0 me\u00f0 vinkonum s\u00ednum. Einnig var h\u00fan mikill leikh\u00fas- og listunnandi og f\u00f3r oft \u00ed leikh\u00fas og \u00e1 lists\u00fdningar.<\/p>\n<p>H\u00fan h\u00e9lt vel utan um h\u00f3pana s\u00edna eins og t.d. konurnar sem h\u00f6f\u00f0u fengi\u00f0 brj\u00f3stakrabbamein og fundu n\u00fdjan l\u00edfskraft \u00ed leikfimi me\u00f0 Lov\u00edsu. H\u00fan eigna\u00f0ist margar vinkonur \u00ed s\u00ednu starfi. Kvennahlaupi\u00f0 er kap\u00edtuli \u00fat af fyrir sig en \u00fear \u00e1tti Lov\u00edsa st\u00f3ran \u00fe\u00e1tt. Kvennahlaupi\u00f0 j\u00f3k hr\u00f3\u00f0ur Gar\u00f0ab\u00e6jar og er vi\u00f0bur\u00f0ur sem \u00ed senn eflir og gle\u00f0ur konur og \u00feau \u00f6ll sem unna dugna\u00f0i kvenna, \u00e1r\u00e6\u00f0ni \u00feeirra og krafti.<\/p>\n<p>Lov\u00edsa \u00f3lst upp hj\u00e1 m\u00f3\u00f0ur sinni, \u00f6mmu og afa \u00ed \u00cdvarsseli en \u00fear bj\u00f3 st\u00f3rfj\u00f6lskyldan. H\u00fan sag\u00f0ist hafa m\u00f3tast mj\u00f6g af hinum eldri. Mamma vann \u00ed mj\u00f3lkurb\u00fa\u00f0inni \u00e1 horni R\u00e1narg\u00f6tu og \u00c6gisg\u00f6tu og afi stunda\u00f0i r\u00f3\u00f0ra, veiddi rau\u00f0maga og gr\u00e1sleppu og \u00feurrka\u00f0i hausa \u00ed sk\u00far nor\u00f0an vi\u00f0 h\u00fasi\u00f0 sem n\u00fa er geymt \u00ed \u00c1rb\u00e6jarsafni. Amma r\u00e6kta\u00f0i matjurtir, kart\u00f6flur, k\u00e1l, rabarbara og au\u00f0vita\u00f0 bl\u00f3m til a\u00f0 skreyta heimili\u00f0 og gefa l\u00edfinu lit. En svo var h\u00fan l\u00edka hj\u00e1 f\u00f6\u00f0urf\u00f3lki s\u00ednu \u00e1 Vatnsleysustr\u00f6ndinni, hj\u00e1 Lov\u00edsu f\u00f6\u00f0ur\u00f6mmu og f\u00f3lkinu hennar \u00e1 Brunnast\u00f6\u00f0um. H\u00fan m\u00f3ta\u00f0ist l\u00edka af \u00fev\u00ed f\u00f3lki enda \u00fe\u00f3tt h\u00fan kynntist ekki h\u00e1lfsystkinum s\u00ednum \u00ed f\u00f6\u00f0ur\u00e6tt fyrr en h\u00fan var komin fast a\u00f0 tv\u00edtugu. \u00deann systkinah\u00f3p \u00feekki \u00e9g af g\u00f3\u00f0u einu fr\u00e1 bernskud\u00f6gum m\u00ednum \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i \u00fear sem Einar var skipstj\u00f3ri, h\u00e1r og myndarlegur ma\u00f0ur. Kona hans var Elisabeth J\u00f3hannson, k\u00f6llu\u00f0 Bett\u00fd (f. 27.apr\u00edl 1916 d. 19.september 1998). \u00deau gengu \u00ed hj\u00f3naband 1946 en Einar sigldi oft til Englands og \u00ed Grimsby var fiskkaupma\u00f0ur sem hann \u00e1tti vi\u00f0skipti vi\u00f0. D\u00f3ttir hans ung og f\u00f6gur vann \u00e1 skrifstofunni og Einar futti hana me\u00f0 s\u00e9r til \u00cdslands eins og v\u00edkingarnir ger\u00f0u for\u00f0um fr\u00e1 Bretlandseyjum. \u00deegar \u00e9g l\u00f6ngu eftir a\u00f0 \u00e9g flutti a\u00f0 vestan kynntist Lov\u00edsu og komst a\u00f0 \u00fev\u00ed hver fa\u00f0ir hennar var s\u00e1 \u00e9g strax skyldleika hennar vi\u00f0 sytskini hennar a\u00f0 vestan. \u00deau b\u00e1ru alla t\u00ed\u00f0 mikla vir\u00f0ingu fyrir Lov\u00edsu og h\u00f6f\u00f0u g\u00f3\u00f0 samskipti vi\u00f0 hana eftir a\u00f0 \u00feau uxu \u00far grasi og uppg\u00f6tvu\u00f0u \u00feessa borsmildu og kr\u00f6ftugu st\u00f3ru-systur. S\u00f6m var afsta\u00f0a Einars og Bettyar til d\u00f3tturinnar og umhyggjan \u00feeirra \u00f3x me\u00f0 \u00e1runum.<\/p>\n<p>Lov\u00edsa rifja\u00f0i \u00fea\u00f0 upp \u00ed fyrrnefndu bla\u00f0avi\u00f0tali a\u00f0 hafa sofna\u00f0 \u00e1 kv\u00f6ldin sem barn \u00ed \u00cdvarsseli vi\u00f0 sog \u00f6ldunnar.<\/p>\n<p>Og enn leikur aldan s\u00e9r vi\u00f0 str\u00f6ndina \u00fear sem \u00cdvarssel st\u00f3\u00f0. N\u00fa er allt breytt vi\u00f0 \u00fe\u00e1 str\u00f6nd en aldan er s\u00f6m vi\u00f0 sig.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 heldur \u00e1fram og vi\u00f0 sem h\u00e9r kve\u00f0jum erum enn \u00fe\u00e1ttakendur \u00ed l\u00edfshlaupinu. Marki\u00f0 er framundan. Hvernig \u00e6tlum vi\u00f0 a\u00f0 m\u00e6ta \u00ed marki\u00f0? Kirkjan minnir gjarnan \u00e1 sk\u00edrnina og sk\u00edrnarkj\u00f3linn. Hann er a\u00f0 v\u00edsu ekki sni\u00f0inn sem \u00ed\u00fer\u00f3ttafl\u00edk en hann minnir \u00e1 a\u00f0 vi\u00f0 vorum \u00edkl\u00e6dd Kristi \u00ed heilagri sk\u00edrn, umvafin elsku hans. Sk\u00edrnin er s\u00e1 b\u00faningur sem dugar l\u00edklega best \u00feegar vi\u00f0 f\u00f6rum um markhli\u00f0i\u00f0 og lj\u00fakum s\u00ed\u00f0ustu metrunum \u00ed l\u00edfshlaupinu. Hann er b\u00faningur fyrir \u00fe\u00e1 \u00ed\u00fer\u00f3tt l\u00edfsins sem f\u00f3lgin er \u00ed hinu tv\u00f6falda k\u00e6rleiksbo\u00f0or\u00f0i Jes\u00fa Krists um a\u00f0 elska Gu\u00f0 og n\u00e1ungann eins og sj\u00e1lfa\/n sig.<\/p>\n<p>L\u00edfshlaupi\u00f0 er \u00ed senn kvennahlaup og karla, hlaup allra, sem nj\u00f3ta \u00feeirrar hamingju a\u00f0 hafa f\u00e6\u00f0st og fengi\u00f0 t\u00e6kif\u00e6ri a\u00f0 lifa. En l\u00edfi\u00f0 er verkefni og stundum erfitt. Vi\u00f0 erum leidd um marga stigu \u00ed \u00feessu l\u00edfi og margt kemur okkur \u00e1 \u00f3vart, b\u00e6\u00f0i atvik og svo l\u00edka samfer\u00f0af\u00f3lki\u00f0. Flestir reynast okkur vel me\u00f0an a\u00f0rir breg\u00f0ast. En einn er s\u00e1 sem engum bregst og \u00fea\u00f0 er Kristur, hverjum \u00feetta h\u00fas er helga\u00f0. H\u00e9r hlj\u00f3mar bo\u00f0skapur hans um huggum og styrk \u00ed m\u00f3tl\u00e6ti og \u00fej\u00e1ningum l\u00edfsins.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 tekur enda og \u00e9g minni \u00e1 brot \u00far lj\u00f3\u00f0i Lov\u00edsu \u00fear sem h\u00fan segir:<\/p>\n<blockquote><p>\u00cd \u00fe\u00ed\u00f0unni munu spor m\u00edn<br \/>\nbr\u00e1\u00f0na, \u2013 hverfa.<br \/>\nS\u00f6kkva til botns<br \/>\n\u00ed vaknandi l\u00edfr\u00edki\u00f0.<\/p><\/blockquote>\n<p>Lov\u00edsa haf\u00f0i s\u00edna s\u00fdn \u00e1 samhengi l\u00edfsins og hringr\u00e1s.<\/p>\n<p>Megi l\u00edf hennar sem n\u00fa hverfu \u00ed dj\u00fapi\u00f0, \u00ed \u00f6ldu aldanna, vekja n\u00fdja von og tr\u00fa \u00ed \u201evaknandi l\u00edfr\u00edki\u201c s\u00e1lna okkar allra og gefa huggun, styrk, l\u00edkn og l\u00e6kningu meina og s\u00e1ra.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 \u00fe\u00f6kkum Gu\u00f0i fyrir g\u00f3\u00f0a konu sem h\u00e9r er kv\u00f6dd og bi\u00f0jum henni allrar blessunar. Megi Gu\u00f0 blessa f\u00f3lki\u00f0 hennar og okkur \u00f6ll \u00ed l\u00edfshlaupinu mikla. Gu\u00f0 gefi a\u00f0 vi\u00f0 keppumst eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 komast \u00ed mark me\u00f0 g\u00f3\u00f0a samvisku \u00ed farteskinu og g\u00f3\u00f0 verk a\u00f0 baki.<\/p>\n<p>Hlaupi\u00f0 stendur enn yfir og vi\u00f0 erum dropar \u00ed \u00feeirri \u00f6ldu sem hreyfist og bylgjast um l\u00edfsveginn. L\u00edfi\u00f0 er stutt en l\u00edfi\u00f0 er magna\u00f0. Nj\u00f3tum \u00feess me\u00f0an dagur er.<br \/>\nGu\u00f0 blessi minningu Lov\u00edsu Einarsd\u00f3ttur og Gu\u00f0 blessi \u00feig.<\/p>\n<p>Amen.<\/p>\n<p>&#8211; \u2013 &#8211;<\/p>\n<p>Kve\u00f0ja fr\u00e1 Elisabetu systur Lov\u00edsu og \u00c1g\u00fasti manni hennar sem eru st\u00f6dd \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0.<br \/>\nL\u00e1ra Betty, Skafti og b\u00f6rn sem eru vi\u00f0 n\u00e1m \u00ed \u00der\u00e1ndheimi bi\u00f0ja fyrir kve\u00f0ju til fr\u00e6nku og fj\u00f6lskyldu.<br \/>\nKve\u00f0ja fr\u00e1 Dagn\u00fdju (Ellingsen) og Gar\u00f0ari (Sigurgeirssyni) sem b\u00faa \u00e1 Sp\u00e1ni.<br \/>\nKve\u00f0ja fr\u00e1 Jenfrid H. Wheeler sem b\u00fdr \u00ed Bandar\u00edkjunum.<br \/>\nKve\u00f0ju sendir Agnes Tanja \u00deorsteinsd\u00f3ttir sem er vi\u00f0 s\u00f6ngn\u00e1m \u00ed V\u00edn.<br \/>\nEinnig Arn\u00f3r Ingimar \u00deorsteinsson og fj\u00f6lskylda \u00ed Bandar\u00edkjunum.<br \/>\nHei\u00f0a D\u00f6gg Arsenault (frb. arsen\u00e1ld) og fj\u00f6lskylda \u00ed Noregi bi\u00f0ur fyrir kve\u00f0ju og einnig J\u00f3hann Hei\u00f0ar Sigtryggsson og fj\u00f6lskyldur hans \u00e1 Akureyri, Saga \u00c1rnad\u00f3ttir, Margr\u00e9t Stef\u00e1nsd\u00f3ttir og fj\u00f6lskylda og Krist\u00edn Svava Stef\u00e1nsd\u00f3ttir og fj\u00f6lskylda.<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed G\u00f6r\u00f0um. Kistan ver\u00f0ur borin \u00fat og \u00fear gefst \u00f6llum t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 signa yfir, heilsa \u00e6ttingjum og votta \u00feeim sam\u00fa\u00f0.<br \/>\nMinningaror\u00f0in ver\u00f0a birt \u00e1 vefs\u00ed\u00f0u minni . . .<\/p>\n<p>Taki\u00f0 postullegri blessun:<br \/>\nGu\u00f0 vonarinnar fylli ykkur \u00f6llum f\u00f6gnu\u00f0i og fri\u00f0i \u00ed tr\u00fanni svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 s\u00e9u\u00f0 au\u00f0ug a\u00f0 voninni \u00ed krafti heilags anda.<br \/>\nAmen.<\/p>\n<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Minningaror\u00f0 Lov\u00edsa Einarsd\u00f3ttir fv. \u00ed\u00fer\u00f3ttakennari 1943-2013 \u00datf\u00f6r fr\u00e1 V\u00eddal\u00ednskirkju f\u00f6studaginn 12. apr\u00edl 2013 kl. 15 Jar\u00f0sett \u00ed G\u00f6r\u00f0um \u00de\u00fa getur lesi\u00f0 r\u00e6\u00f0una h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og einnig hlusta\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-102","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/102","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=102"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/102\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=102"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=102"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=102"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}