{"id":1009,"date":"2013-12-25T21:27:58","date_gmt":"2013-12-25T21:27:58","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1009"},"modified":"2013-12-25T21:27:58","modified_gmt":"2013-12-25T21:27:58","slug":"um-heimsins-vald-og-himins","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1009","title":{"rendered":"Um heimsins vald og himins"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/12\/jatan.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-1010\" alt=\"jatan\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/12\/jatan.jpg\" width=\"240\" height=\"168\" \/><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Pr\u00e9dikun vi\u00f0 h\u00e1t\u00ed\u00f0armessu<\/p>\n<p>\u00ed Neskirkju \u00e1 j\u00f3ladag 2013 kl. 14<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una getur\u00f0u hlusta\u00f0 \u00e1 og lesi\u00f0 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<p>J\u00f3lan\u00f3ttin er a\u00f0 baki me\u00f0 s\u00ednum r\u00f3mant\u00edska bl\u00e6, helgis\u00f6gum og s\u00f6ng \u00e1 bl\u00e1dimmri n\u00f3tt vi\u00f0 kertalj\u00f3s, gafir og g\u00f3\u00f0g\u00e6ti, me\u00f0an nor\u00f0anb\u00e1li\u00f0 \u00edskalt lemur lj\u00f3rann. Upp er runninn j\u00f3ladagur og n\u00fa hlj\u00f3mar j\u00f3lagu\u00f0spjall J\u00f3hannesar sem er me\u00f0 allt \u00f6\u00f0rum bl\u00e6 en fr\u00e1s\u00f6gn L\u00fakasar. J\u00f3hannes postuli ritar sitt gu\u00f0spjall s\u00ed\u00f0ar \u00e1 fyrstu \u00f6ld en l\u00e6knirinn ger\u00f0i. Postulinn s\u00e9r samhengi s\u00f6gu og eil\u00edf\u00f0ar. Gu\u00f0 sem allt hefur skapa\u00f0 er kominn til manna. Gu\u00f0 ger\u00f0ist ma\u00f0ur. Or\u00f0i\u00f0, sk\u00f6purarkrafturinn, viska eil\u00edf\u00f0ar, var\u00f0 hold \u00ed Jes\u00fa Kristi.<\/p>\n<p>A\u00f0eins ein pers\u00f3na s\u00f6gunnar er nefnd, J\u00f3hannes sk\u00edrari, sem var undanfari Jes\u00fa. Keisarar og valdamenn er v\u00ed\u00f0sfjarri, en hinn r\u00f3tt\u00e6ki kallari setur atbur\u00f0inn \u00ed s\u00f6gulegt samhengi.<\/p>\n<p>Hann sag\u00f0i:<\/p>\n<p>\u201e\u00c9g er s\u00e1 sem Jesaja sp\u00e1ma\u00f0ur talar um. \u00c9g er r\u00f6dd hr\u00f3panda \u00ed ey\u00f0im\u00f6rk er segir: Geri\u00f0 beinan veg Drottins.\u201c<\/p>\n<p>J\u00f3hannes sk\u00edrari var hugrakkur ma\u00f0ur og hann vissi a\u00f0 bo\u00f0skapur Mess\u00edasar var fagna\u00f0arerindi handa f\u00e1t\u00e6kum og hrj\u00e1\u00f0um, bo\u00f0skapur handa krepptu f\u00f3lki og a\u00f0\u00ferengdu. J\u00f3hannes l\u00e9t l\u00edfi\u00f0 fyrir bo\u00f0un s\u00edna og gagnr\u00fdni \u00e1 spillingu valdhafanna. Hann sta\u00f0festi \u00fea\u00f0 sem Mar\u00eda m\u00f3\u00f0ir Gu\u00f0s \u00e1 j\u00f6r\u00f0u sag\u00f0i er h\u00fan f\u00e9kk \u00feau t\u00ed\u00f0indi a\u00f0 h\u00fan b\u00e6ri gu\u00f0d\u00f3minn sj\u00e1lfan undir belti. \u00de\u00e1 flutti h\u00fan hi\u00f0 fr\u00e6ga lj\u00f3\u00f0, Magnificat, sem tekur nafn sitt af fyrsta or\u00f0i lj\u00f3\u00f0sins \u00e1 lat\u00ednu sem byrjar svo \u00e1 \u00edslensku: \u201e\u00d6nd m\u00edn miklar Drottinn . . . \u201c og g\u00e6ti heita\u00f0 Mikla-lj\u00f3\u00f0 \u00e1 \u00edslensku. \u00cd lj\u00f3\u00f0inu kemur fram tilgangurinn me\u00f0 komu Gu\u00f0s \u00ed \u00feennan heim:<\/p>\n<p>\u201eM\u00e1ttarverk hefur hann unni\u00f0 me\u00f0 armi s\u00ednum<\/p>\n<p>og drembil\u00e1tum \u00ed hug og hjarta hefur hann tv\u00edstra\u00f0.<\/p>\n<p>Valdh\u00f6fum hefur hann steypt af st\u00f3li<\/p>\n<p>og upp hafi\u00f0 sm\u00e6lingja,<\/p>\n<p>hungra\u00f0a hefur hann fyllt g\u00e6\u00f0um<\/p>\n<p>en l\u00e1ti\u00f0 r\u00edka t\u00f3mhenta fr\u00e1 s\u00e9r fara.\u201c<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>H\u00e9r er bo\u00f0i\u00f0 bylting \u00e1 \u00feremur svi\u00f0um mannl\u00edfsins:<\/p>\n<p>Si\u00f0fer\u00f0isleg bylting &#8211; drembil\u00e1tum er tv\u00edstra\u00f0.<\/p>\n<p>P\u00f3lit\u00edsk bylting &#8211; valh\u00f6fum steypt af st\u00f3li.<\/p>\n<p>Efnahagsleg bylting &#8211; r\u00edkir fara t\u00f3mhentir fr\u00e1 Drottni.<br \/>\nKristin tr\u00fa er r\u00f3tt\u00e6k tr\u00fa og h\u00fan l\u00e6tur sig var\u00f0a mannl\u00edfi\u00f0. H\u00fan er ekki b\u00e6nahjal \u00e1 kodda og pr\u00edvatstundir \u00ed einr\u00fami me\u00f0 \u00f3skalista eins og \u00feegar b\u00f6rn bera fram b\u00f3n s\u00edna fyrir j\u00f3lasveininn.<\/p>\n<p>H\u00fan er n\u00fd hugsun handa allri ver\u00f6ld, n\u00fd vi\u00f0mi\u00f0 og afsta\u00f0a elsku og umhyggju \u00ed gar\u00f0 allra manna.<\/p>\n<p>J\u00f3hannes sk\u00edrari vitna\u00f0i \u00ed Jesaja sp\u00e1mann sem uppi var \u00e1 6. \u00f6ld f. Kr. er hann gaf starfi s\u00ednu tilv\u00edsun og grundv\u00f6ll. Jesaja var \u00f3tr\u00falegur ma\u00f0ur. Hann vir\u00f0ist hafa s\u00e9\u00f0 \u00ed gegnum m\u00f3\u00f0u og mistur menningar, stj\u00f3rnm\u00e1la og atbur\u00f0ar\u00e1sar samt\u00ed\u00f0ar sinnar og langt inn \u00ed framt\u00ed\u00f0ina. Hann setti fram r\u00f3tt\u00e6kar hugmyndir um hi\u00f0 komandi r\u00edki m.a. me\u00f0 \u00feessum abs\u00fard h\u00e6tti:<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 mun \u00falfurinn b\u00faa hj\u00e1 lambinu<\/p>\n<p>og pardusd\u00fdri\u00f0 liggja hj\u00e1 ki\u00f0lingnum.<\/p>\n<p>K\u00e1lfur, lj\u00f3n og alif\u00e9 munu ganga saman<\/p>\n<p>og sm\u00e1sveinn g\u00e6ta \u00feeirra.<\/p>\n<p>K\u00fdr og birna ver\u00f0a saman \u00e1 beit,<\/p>\n<p>ungvi\u00f0i \u00feeirra hv\u00edlir hvort hj\u00e1 \u00f6\u00f0ru,<\/p>\n<p>og lj\u00f3ni\u00f0 mun b\u00edta gras eins og nauti\u00f0.<\/p>\n<p>Brj\u00f3stmylkingurinn mun leika s\u00e9r<\/p>\n<p>vi\u00f0 holu n\u00f6\u00f0runnar<\/p>\n<p>og barn, n\u00fdvani\u00f0 af brj\u00f3sti,<\/p>\n<p>stinga hendi inn \u00ed b\u00e6li h\u00f6ggormsins.<\/p>\n<p>Enginn mun gera illt,<\/p>\n<p>enginn valda ska\u00f0a<\/p>\n<p>\u00e1 m\u00ednu heilaga fjalli<\/p>\n<p>\u00fev\u00ed a\u00f0 allt landi\u00f0 ver\u00f0ur fullt af \u00feekkingu \u00e1 Drottni<\/p>\n<p>eins og vatn hylur sj\u00e1vardj\u00fapi\u00f0.<\/p>\n<p>(Jes 11.6-9)<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Er h\u00e6gt a\u00f0 hugsa s\u00e9r meiri og \u00f6flugri byltingu en \u00feessa sem er svo r\u00f3tt\u00e6k a\u00f0 h\u00fan breytir innsta e\u00f0li r\u00e1nd\u00fdra og l\u00edka gj\u00f6rspilltra manna, karla og kvenna? Fjarst\u00e6\u00f0ukennd von. En er \u00fea\u00f0 ekki einmitt \u00feannig sem menn ver\u00f0a a\u00f0 vona? Setti Mandela ekki von s\u00edna \u00e1 f\u00e1r\u00e1nlega draums\u00fdn? \u00cd \u00fatvarpsvi\u00f0tali vi\u00f0 hv\u00edtan mann um a\u00f0skilna\u00f0arstefnuna \u00ed S-Afr\u00edku segist hann \u00ed raun hafa tr\u00faa\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 ef svartir fengju almenn mannr\u00e9ttindi v\u00e6ri s\u00fa mikla \u00f3gn yfirvofandi a\u00f0 jafnvel menn eins og Mandela sem \u00fe\u00e1 var \u00ed fangelsi g\u00e6tu komist til valda! En svo ger\u00f0ist undri\u00f0! Bylting hugarfarsins var\u00f0 a\u00f0 veruleika og n\u00fa s\u00e9r \u00feessi hv\u00edti ma\u00f0ur l\u00edfi\u00f0 \u00ed n\u00fdju og marglitu lj\u00f3si.<\/p>\n<p>Og enn eiga byltingar s\u00e9r sta\u00f0.<\/p>\n<p>S\u00f6gur Bibl\u00edunnar er sprottnar upp \u00far mannl\u00edfinu \u00ed Mi\u00f0-Austurl\u00f6ndum \u00fear sem \u00e6ttb\u00e1lkar og s\u00ed\u00f0ar \u00fej\u00f3\u00f0ir og \u00fej\u00f3\u00f0arbrot hafa l\u00f6ngum \u00e1tt \u00ed erjum. N\u00fa hefur vora\u00f0 \u00ed Arabaheiminum svonefnda og m\u00f6rgum valdh\u00f6fum veri\u00f0 steypt af st\u00f3li. Sagt er a\u00f0 uppl\u00fdsingabyltingin hafi gert \u00feetta m\u00f6gulegt, fars\u00edmar og essemmess, m\u00f6guleikar almennings til a\u00f0 tengjast og tj\u00e1 sig \u00e1n ritsko\u00f0unar. Vorinu \u00ed heimi Araba hefur veri\u00f0 r\u00e6kileg ger\u00f0 skil \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum. Minna fer hins vegar fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 vetur hefur gengi\u00f0 \u00ed gar\u00f0 hj\u00e1 kristnum m\u00f6nnum \u00ed s\u00f6mu l\u00f6ndum. Skelfilegar ofs\u00f3knir \u00e1 hendur \u00feeim eiga s\u00e9r sta\u00f0 og t.a.m. hafa um tv\u00e6r millj\u00f3nir af tveimu og h\u00e1lfri millj\u00f3n kristinna manna \u00ed \u00cdrak fl\u00fai\u00f0 land vegna ofs\u00f3kna. Flest af \u00fev\u00ed f\u00f3lki f\u00f3r til S\u00fdrlands og \u00fe\u00e1 eins og \u00far \u00f6skunni \u00ed eldinn og er n\u00fa \u00e1 fl\u00f3tta, landlaust og ofs\u00f3tt. \u00dear bj\u00f3 \u00e1l\u00edka st\u00f3r h\u00f3pur kristinn manna fyrir. Fj\u00f3rt\u00e1n millj\u00f3nir kristinna manna \u00ed arabaheiminum b\u00faa vi\u00f0 \u00f3\u00f6ryggi og \u00f3gn. \u00deetta eru br\u00e6\u00f0ur okkar og systur \u00ed tr\u00fanni \u00e1 Krist, f\u00f3lk sem er \u00f3gna\u00f0 vegna tr\u00faar sinnar. \u00dea\u00f0 er beinl\u00ednis h\u00e6ttulegt a\u00f0 vera kristinn \u00ed m\u00f6rgum l\u00f6ndum \u00fear sem m\u00faslimar eru \u00ed meirihluta og \u00f6fgah\u00f3par komast upp me\u00f0 hry\u00f0juverk. \u00dea\u00f0 kostar sumsta\u00f0ar miki\u00f0 a\u00f0 tr\u00faa. En h\u00e9r \u00e1 landi er tr\u00fain allt of m\u00f6rgum eins og ver\u00f0laus kr\u00f3na sem kasta m\u00e1 \u00e1 gl\u00e6. Vi\u00f0 og Evr\u00f3pub\u00faar f\u00f6rum vonandi a\u00f0 vakna af svefni\u00a0 og horfast \u00ed augu vi\u00f0 a\u00f0 ma\u00f0urinn lifir ekki af brau\u00f0i einu saman og hann getur ekki heldur lifa\u00f0 af me\u00f0 grunnar l\u00edfssko\u00f0anir og k\u00e6ruleysisleg vi\u00f0horf til st\u00e6rstu spurninga l\u00edfsins. Viska aldanna ver\u00f0ur ekki afgreidd me\u00f0 einf\u00f6ldum d\u00e6gurflugum e\u00f0a upphr\u00f3punum, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 grunnu bloggi \u00e1 \u00ferasv\u00f6llum netsins.<\/p>\n<p>Kristnir menn og m\u00faslimar hafa \u00ed aldanna r\u00e1s s\u00fdnt a\u00f0 \u00feeir geta lifa\u00f0 saman \u00ed s\u00e1tt og samlyndi. M\u00f6rg d\u00e6mi eru um \u00fea\u00f0 m.a. \u00e1 Sp\u00e1ni og v\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n<p>\u00cd hinni g\u00f6mlu Mughal h\u00f6fu\u00f0borg Fatehpur Sikri, su\u00f0ur af Delhi \u00ed Indlandi, er miki\u00f0 steinhli\u00f0 a\u00f0 mosku sta\u00f0arins, bogadregi\u00f0 og skreytt. \u00cd \u00feessu fagra hli\u00f0i er \u00e1ritun h\u00f6ggvin \u00ed steinbogann \u00fear sem segir:<\/p>\n<p>\u201eJes\u00fas, sonur Mar\u00edu, sag\u00f0i: \u201eVer\u00f6ldin er br\u00fa, far\u00f0ur yfir hana, en bygg\u00f0u engin h\u00fas \u00e1 henni. S\u00e1 sem gerir s\u00e9r von um daginn m\u00e1 vona \u00e1 eil\u00edf\u00f0ina; en heimurinn varir a\u00f0eins eina stund. Ver\u00f0u henni \u00ed b\u00e6n, \u00fev\u00ed allt anna\u00f0 er huli\u00f0.\u201c\u201c (\u00fe\u00fd\u00f0ing \u00d6BJ)<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>V\u00edst er a\u00f0 ekki hugsa allir m\u00faslimar eins og umbur\u00f0arlyndi \u00feeirra er meira \u00e1 einum sta\u00f0 en \u00f6\u00f0rum og ford\u00f3marnir me\u00f0 \u00fdmsu m\u00f3ti. Sama m\u00e1 segja um hinn kristna heim. Vi\u00f0 erum haldin ford\u00f3mum \u00e1 marga lund en \u00fer\u00e1tt fyrir \u00fea\u00f0 eru mannr\u00e9ttindi \u00fe\u00f3 \u00f3v\u00ed\u00f0a betur trygg\u00f0 en \u00e1 Vesturl\u00f6ndum.<\/p>\n<p>Heimurinn skreppur meir og meir saman og vi\u00f0 ver\u00f0um \u00ed vaxandi m\u00e6li a\u00f0 fr\u00e6\u00f0ast um \u00f3l\u00edkar stefnur og strauma \u00ed heiminum til a\u00f0 komast af \u00ed heims\u00feorpinu. \u00deess vegna \u00fearf a\u00f0 fr\u00e6\u00f0a r\u00e6kilega um kristna tr\u00fa og menningararf okkar \u00ed \u00edslenskum sk\u00f3lum en um lei\u00f0 a\u00f0 uppl\u00fdsa nemendur um inntak helstu tr\u00faarbrag\u00f0a heims.<\/p>\n<p>Verkefni l\u00edfsins eru margv\u00edsleg og mestu skiptir a\u00f0 leitast vi\u00f0 a\u00f0 vinna \u00far \u00feeim \u00e1 uppbyggilegan h\u00e1tt. S\u00e1rsaukinn og m\u00f3tl\u00e6ti\u00f0 getur leitt af s\u00e9r perlur eins og gerist \u00ed n\u00e1tt\u00farunni \u00fear sem perlum\u00f3\u00f0urskelin umvefur sandkorni\u00f0 sem s\u00e6rir hana efnasambandi sem h\u00fan hle\u00f0ur utan um korni\u00f0 \u00fear til \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 sk\u00ednandi perlu. St\u00f3rmenni\u00f0 Mandela sem l\u00e9st n\u00fdlega er e.t.v. gleggsta d\u00e6mi\u00f0 um \u00feessa speki. Hann var st\u00f3rmenni og \u00fea\u00f0 gat hann veri\u00f0 vegna l\u00edtill\u00e6tis s\u00edns, al\u00fe\u00fd\u00f0legheita og h\u00e6fileikans til a\u00f0 skapa tengsl vi\u00f0 \u00f3l\u00edka einstaklinga og sko\u00f0anah\u00f3pa.<\/p>\n<p>\u201eS\u00e1 sem gerir s\u00e9r von um daginn m\u00e1 vona \u00e1 eil\u00edf\u00f0ina; en heimurinn varir a\u00f0eins eina stund.\u201c Svo er rita\u00f0 \u00ed steinbogann fyrrnefnda.<\/p>\n<p>Hva\u00f0 mun framt\u00ed\u00f0in bera \u00ed skauti s\u00e9r. Hvernig ver\u00f0ur \u00feessi eina stund heimsins? Hver ver\u00f0a verkefnin okkar? Hva\u00f0 munum vi\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0, gl\u00edma vi\u00f0 og jafnvel berjast vi\u00f0? N\u00fa \u00feurfum vi\u00f0 sem \u00fej\u00f3\u00f0 a\u00f0 horfa fram \u00e1 veginn af einur\u00f0 og festu og for\u00f0a\u00f0st \u00fea\u00f0 a\u00f0 flj\u00f3ta sofandi a\u00f0 feig\u00f0ar\u00f3si af \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 nennum ekki a\u00f0 halda vi\u00f0 menningu okkar og hinum kristna si\u00f0. Einhver \u00f3skilgreind andlegheit koma ekki \u00ed sta\u00f0 heilsteyptrar tr\u00faar me\u00f0 m\u00f6rg \u00fe\u00fasund \u00e1ra s\u00f6gu og i\u00f0kun fr\u00e6\u00f0imanna og almennings. L\u00e1tum ekki menningu okkar gufa upp og hverfa inn \u00ed eitthvert t\u00f3mar\u00fam sem sumir vir\u00f0ast \u00fer\u00e1 og vona \u00e1. T\u00f3mar\u00fam \u00ed tr\u00faarlegum efnum e\u00f0a l\u00edfssko\u00f0unum ver\u00f0ur aldrei til. T\u00f3mar\u00fam fyllist jafnhar\u00f0an af sko\u00f0unum sem taka yfir r\u00fdmi\u00f0. R\u00fdnum \u00ed sko\u00f0anirnar \u00e1 tilbo\u00f0sp\u00f6llum samt\u00edmans og t\u00f6kumst \u00e1 vi\u00f0 hugmyndafr\u00e6\u00f0i sem er framandi okkar kristnu s\u00fdn. R\u00f6kr\u00e6\u00f0a og sko\u00f0anaskipti mun a\u00f0eins efla okkur ef vi\u00f0 g\u00f6ngum til samtalsins \u00e1 hei\u00f0arlegan og einar\u00f0an h\u00e1tt. \u00d3ttumst ekki framt\u00ed\u00f0ina. Munum a\u00f0 tr\u00fain lofar okkur samfylgd hans sem f\u00e6ddist \u00e1 j\u00f3lum og sag\u00f0i:<\/p>\n<p>\u201eSj\u00e1, \u00e9g er me\u00f0 y\u00f0ur alla daga allt til enda veraldar.\u201c<\/p>\n<p>Hann bo\u00f0a\u00f0i ekki einfalt l\u00edf \u00e1n bar\u00e1ttu og f\u00f3rna heldur h\u00f3lmg\u00f6ngu vi\u00f0 lygina og \u00f3r\u00e9ttinn. H\u00e9r \u00e1 landi eru n\u00e6g verkefni \u00e1 \u00f6krum lygi og \u00f3r\u00e9ttar. \u00c1 li\u00f0num \u00e1rum hafa augu landsmanna lokist upp fyrir \u00fev\u00ed sem betur m\u00e1 fara. N\u00fa s\u00e9r margt f\u00f3lk betur \u00ed gegnum spillinguna en \u00e1\u00f0ur. \u00dear \u00fearf a\u00f0 uppr\u00e6ta illgresi og spillingu h\u00e9r \u00e1 landi, \u00ed stj\u00f3rnkerfinu, innan stj\u00f3rnm\u00e1laflokka og v\u00ed\u00f0ar. \u00cd stj\u00f3rnarskr\u00e1rm\u00e1linu svo s\u00e6mi s\u00e9 teki\u00f0, hafa valdhafar leyft s\u00e9r a\u00f0 hunsa vilja almennings og misbeitt valdi s\u00ednu \u00ed dekri vi\u00f0 pr\u00edvatsko\u00f0anir. Vir\u00f0ing fyrir l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i krefst samst\u00f6\u00f0u um \u00farslit. \u00cd \u00fej\u00f3\u00f0aratkv\u00e6\u00f0agrei\u00f0slu hafa allir eitt atkv\u00e6\u00f0i, l\u00edka valdhafarnir og \u00feegar \u00fej\u00f3\u00f0in hefur tj\u00e1\u00f0 sig \u00fe\u00e1 liggur ni\u00f0ursta\u00f0an fyrir og henni m\u00e1 ekki hagga vegna pr\u00edvatsko\u00f0ana einhverra einstaklinga sem tr\u00f3na \u00e1 toppi valdap\u00edram\u00eddans. Vitnisbur\u00f0ur \u00far innsta hring stj\u00f3rnm\u00e1lanna sta\u00f0festir \u00feessi vinnubr\u00f6g\u00f0. \u00dev\u00ed mi\u00f0ur.<\/p>\n<p>Kristin tr\u00fa er r\u00f3tt\u00e6k afsta\u00f0a til l\u00edfsins, sem s\u00fdnir samst\u00f6\u00f0u me\u00f0 k\u00fagu\u00f0u f\u00f3lki og hrj\u00e1\u00f0u, \u00feeim sem ver\u00f0a fyrir einelti og \u00f6llum sem f\u00e1 ekki a\u00f0 lifa manns\u00e6mandi l\u00edfi.<\/p>\n<p>Valdhafar sem hygla yfirst\u00e9ttinni og forr\u00e9ttindah\u00f3pum \u00e1 kostna\u00f0 almennings eiga \u00fea\u00f0 ekki skili\u00f0 a\u00f0 sitja a\u00f0 v\u00f6ldum. \u00deeir hafa fyrirgert r\u00e9tti s\u00ednum. Og \u00fev\u00ed spyr \u00e9g: Mun b\u00e6n Mar\u00edu gu\u00f0sm\u00f3\u00f0ur r\u00e6tast \u00e1 \u00feeim sem n\u00fa stj\u00f3rna eins og h\u00fan ger\u00f0i \u00e1 tveimur fyrri r\u00edkisstj\u00f3rnum \u00feessa lands? \u201eValdh\u00f6fum hefur hann steypt af st\u00f3li\u201c, sag\u00f0i h\u00fan.<\/p>\n<p>Kristur bj\u00f3 l\u00e6risveina s\u00edna undir m\u00f3tl\u00e6ti og sag\u00f0i:<\/p>\n<p>\u201e\u00deetta hef \u00e9g tala\u00f0 vi\u00f0 y\u00f0ur svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r eigi\u00f0 fri\u00f0 \u00ed m\u00e9r. \u00cd heiminum hafi\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00ferenging. En veri\u00f0 hughraustir. \u00c9g hef sigra\u00f0 heiminn.\u201c (J\u00f3h 16.33)<\/p>\n<p>\u00c1 j\u00f3lum f\u00f6gnum vi\u00f0 komu frelsarans. Hann hefur sigra\u00f0 heiminn og hann fylgir okkur fram um veg og inn \u00ed n\u00fdtt \u00e1r. Hann gefur okkur afl til bar\u00e1ttu fyrir r\u00e9ttl\u00e6ti og fri\u00f0i eins og hann gaf frelsishetjunni Mandela kraftinn og gildagrunninn til h\u00f3lmg\u00f6ngu vi\u00f0 spillinguna og lygina, mannfyrirlitninguna og miskunnarleysi\u00f0 sem einkenndi a\u00f0skilna\u00f0arstefnuna.<\/p>\n<p>J\u00f3labarni\u00f0 saklausa var\u00f0 a\u00f0 hugr\u00f6kkum manni sem breytti ver\u00f6ldinni og haf\u00f0i meiri \u00e1hrif en nokkur \u00f6nnur pers\u00f3na s\u00f6gunnar. Hann hefur sigra\u00f0 heiminn.<\/p>\n<p>Fylgjum honu \u00ed einar\u00f0ri bar\u00e1ttu fyrir r\u00e9ttl\u00e6ti og fri\u00f0i, sanngirni og s\u00e1ttargj\u00f6r\u00f0.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>D\u00fdr\u00f0 s\u00e9 Gu\u00f0i, f\u00f6\u00f0ur og syni og heil\u00f6gum anda. Svo sem var \u00ed upphafi er enn og ver\u00f0ur um aldir alda. Amen.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Tilkynning:<\/p>\n<p>Bla\u00f0 me\u00f0 uppl\u00fdsingum um helgihald um j\u00f3l og \u00e1ram\u00f3t liggur frammi.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Taki\u00f0 postullegri blessun:<\/p>\n<p>Fri\u00f0ur Gu\u00f0s sem er \u00e6\u00f0ri \u00f6llum skilningi var\u00f0veiti hj\u00f6rtu y\u00f0ar og hugsanir \u00ed Kristi Jes\u00fa, Drottni vorum og frelsara.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>H\u00e9r fyrir ne\u00f0an eru tenglar \u00e1 fr\u00e9ttir sem n\u00fdttar voru \u00ed r\u00e6\u00f0unni:<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>A long winter for the Middle East&#8217;s Christians<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>The last decade has been catastrophic for the 14 million Christians in the Middle East, says William Dalrymple.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Read more:<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/www.bbc.co.uk\/news\/magazine-25463722\">http:\/\/www.bbc.co.uk\/news\/magazine-25463722<\/a><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/www.kristeligt-dagblad.dk\/artikel\/538847:Kirke---tro--Biskopper--Kristendommen-er-blevet-mere-relevant-for-danskerne\"><b>Biskopper: Kristendommen er blevet mere relevant for danskerne | Kristeligt Dagblad<\/b><b><\/b><\/a><\/p>\n<p>Navigated from <a href=\"http:\/\/www.kristeligt-dagblad.dk\/artikel\/538847:Kirke---tro--Biskopper--Kristendommen-er-blevet-mere-relevant-for-danskerne\">Biskopper: Kristendommen er blevet mere relevant for danskerne | Kristeligt Dagblad<\/a> | shared via <a href=\"http:\/\/www.feedly.com\/\">feedly mobile<\/a><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&#8220;Jesus, Son of Mary (on whom be peace) said: The World is a Bridge, pass over it, but build no houses upon it. He who hopes for a day, may hope for eternity; but the World endures but an hour. Spend it in prayer, for the rest is unseen.\u201d<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &nbsp; Pr\u00e9dikun vi\u00f0 h\u00e1t\u00ed\u00f0armessu \u00ed Neskirkju \u00e1 j\u00f3ladag 2013 kl. 14 &nbsp; R\u00e6\u00f0una getur\u00f0u hlusta\u00f0 \u00e1 og lesi\u00f0 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[],"class_list":["post-1009","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1009","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1009"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1009\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1009"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1009"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1009"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}