Örn Bárður Jónsson
Minningarorð
Skúli Skúlason
verkfræðingur
1942-2013
Ræðuna er hægt að lesa hér fyrir neðan
og einnig hlusta á hana með því að
smella á þríhyrninginn (Play-takkann) Lesa meira
Örn Bárður Jónsson
Minningarorð
Skúli Skúlason
verkfræðingur
1942-2013
Ræðuna er hægt að lesa hér fyrir neðan
og einnig hlusta á hana með því að
smella á þríhyrninginn (Play-takkann) Lesa meira
Minningarorð
Hallveig Hannesdóttir
1927-2013
Bálför frá Neskirkju
fimmtudaginn 30. maí 2013 kl. 13
Jarðsett verður síðsumars í Sóllandi.
Ræðuna geturðu lesið hér fyrir neðan og einnig hlustað á hana
með því að smella á þríhyrninginn (Play-takkann):
The sketch above is a classical way of explaining The Holy Trinity. Each person of the Trinity is God but none of the three is the other. The relationship is ono of love and none can be without the other.
The sunday a week after Pentecost, May 26, 2013, is Trinity Sunday.
Klassísk leið til að útskýra Heilaga þrenningu. Sérhver persóna guðdómsins er Guð og hver um sig er ekki önnur en hún sjálf. Persónurnar þrjár eiga samfélag í kærleika og hver um sig getur ekki verið án hinna.
Sunnudaginn eftir hvítasunnu, 26. maí 2013 er Þrenningarhátíð.
My Urban Sketches published on my Flickr, Facebook and Twitter.
Sat málþingið sem kynnt er fyrir neðan punktana mína.
Mínir þankar:
Athyglisverð umræða sem ég held að kristallist í því að 1. boðorðið er forsmáð. Um leið og eitthvað verður „guð“ og kemur í staðinn fyrir hinn eina sanna GUÐ, þá fer allt á verri veg. Fjármálakerfið fyrir Hrun fór sínar eigin leiðir og yfirgaf Eden hins siðlega og rétta. Íslenskir fjármálamenn sögðu sumir að siðferðis væri ekki þörf í viðskiptum því markaðurinn sæi um það. Hin ósýnilega hönd markaðarins (Adam Smith) var guðleg í augum þeirra og því þurfti lítið sem ekkert eftirlit. Við vitum hvernig fór. Við enduðum út í skurði. Þannig var það líka í Eden forðum. Adam og Eva lentu líka úti í skurði, utangarðs, á vergangi í striti og streði til æviloka. Lestu fyrsta kaflann í 1. Mósebók. Hún er táknsaga um lífið og merkasti texti sem til er. Táknsögurnar á fyrstu síðum Biblíunnar eru lyklar að skliningi á öllu mannlífi, reisn mannsins og hruni hans, gáfum og brjálæði, elsku og hatri, getu og vanmætti.
Þakka góða stund og hugvekjandi þanka fyrirlesara og þeirra sem viðbrögð veittu. Passamynd fyrirlesarans er án efa betri en sú sem hér er dregin upp. Forlátið mér framhleypnina á sviði myndlistarinnar 😉
„Fjármálamarkaður: Trúarbrögð nútímans“
Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar boðar til málþings með
dr. Mark C. Taylor, forseta trúarbragðafræðideildar Columbia Háskóla í
New York. Erindi hans er „Meltdowns: The Perils of Extreme Finance“, sjá
neðar.
Málþingið verður fimmtudaginn 16. maí kl. 13-16 í fyrirlestrasal
Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu. Málþingið er haldið í samstarfi við
Guðfræðistofnun HÍ og Hugvísindadeild. Ekkert námskeiðsgjald.
Viðbrögð veita dr. Jón Ólafsson, heimspekingur, og Sigríður Ingbjörg
Ingadóttir, hagfræðingur.
Hér er abstrakt frá Mark C. Taylor um erindi hans:
„Meltdowns: The Perils of Extreme Finance
In the past several decades a new form of capitalism has emerged:
finance capitalism. This has been the result of a combination of
factors ranging from technological innovation to changes in regulatory
policies. The critical variable is speed. Today’s high-speed,
high-frequency trading has created a system has already brought
devastation and now threatens to collapse.
While apparently hyper-modern, financial capitalism has its roots in
modernity. Speed is, in fact, a modern invention. But modernity, in
turn, was initiated by Luther. From Wittenberg to Reykjavik – an
unlikely but timely trajectory.“
Miðvikudaginn 15. maí kl. 10-12 verður dr. Mark C. Taylor með seminar
sem nefnist Framtíð háskóla einsog við þekkjum þá. Það verður haldið í
samtarfi við Hugvísindastofnun HÍ og Guðfræðistofnun HÍ og nánar auglýst
síðar.
Hér eru upplýsingar um dr. Mark C. Taylor. Hann er doktor í heimspeki
frá Kaupmannahafnarháskóla og doktor í trúarbragðafræði frá Harvard.
Hann hefur ritað fjölmargar greinar og á þriðja tug bóka á ýmsum
fræðasviðum. Meðal fyrstu bóka eru rit um Hegel og Kierkegaard en meðal
nýrri bóka hans eru „Confidence Games: Money and Markets in a World
without Redemption“ (2006) og „After God“ (2007). Hann er umdeildur,
afkastamikill og fjölfróður, enda hefur hann skrifað um guðfræði,
heimspeki, hagfræði, listfræði og arkítektúr. Hann hefur
hlotið fjölda viðurkenninga fyrir fræðastörf. Hann er áhrifamikill
höfundur og vekjandi fyrirlesari.
Heim
Prédikun við guðsþjónustu
í Neskirkju
sunnudaginn 12. maí kl. 14
í samvinnu við Ísfirðingafélagið
Kór heimamanna leiðir söng
Organisti Guðný Einarsdóttir
Þú getur lesið ræðuna og hlustað á hana hér fyrir neðan. Lesa meira
Mætti á málþing í Árnagarði, HÍ, og hlustaði þar á fræðimenn. Glósaði í Moleskine bókina mína og rissaði á blöð sem ég síðan klippti og límdi inn í skissubókina mína. Þetta mybdblogg er endurgert þ.e.a.s. myndir af þremur fyrirlesurum voru teiknaðar upp á nýtt.
Nánari upplýsingar um dagsrkána er hér.
Teiknaði í hádeginu á sólbjörtum maídegi. Spennistöðin er bak við heimili mitt og er flott hús sem slíkt.
Senn fer allt að grænka á ný og spennan að aukast í mannlífinu, hin heilbrigða sumarspenna sem gerir okkur öll hressari og glaðari.
Öðru máli gegnir um spennuna sem er í stjórnmálum landsins. Í því sambandi dugar engin spennistöð til að jafna strauminn heldur er þörfin vaxandi fyrir spennitreyju á sjálftökuliðið í Sjálfsóknarflokknum.
You must be logged in to post a comment.